Eitt af
einkennum hvers ríkis er lögbundið skipulag. Íslenskur réttur á fyrst og fremst
rætur að rekja til laga sem sett eru af Alþingi en einnig fyrirmæla
framkvæmdarvaldsins, fyrst og fremst reglugerða. Öll lög og fyrirmæli
framkvæmdarvaldsins ber að birta í Stjórnartíðindum. Bakhjarlar réttarreglnanna
eru lögregla og ákæruvald sem og dómstólar og að hluta til stjórnvöld sem leysa
úr ágreiningi.
Á ábyrgðarsviði dómsmálaráðuneytisins er að birta þær réttarreglur sem gilda hér á landi. Þar falla jafnframt undir stofnanir ríkisins sem annast réttarvörslu, lögregluembættin, Landhelgisgæslan, ákæruvaldið,
dómstólar, Fangelsismálastofnun ríkisins, fangelsin og sýslumenn.
Í gildandi fjármálaáætlun heyra verkefni á sviði laga og réttar meðal annars undir eftirfarandi málefnasvið: dómstólar, almanna- og réttaröryggi, réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla innanríkismála