Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sölvhólsgötu 4
101 Reykjavík
Sími: 545 9500
Netfang: [email protected]
Kt.: 460269-2969

Afgreiðsla ráðuneytisins er opin virka daga kl. 8.30–16.00.

Meginhlutverk mennta- og barnamálaráðuneytisins er að tryggja að menntun, aðbúnaður og réttindi barna á Íslandi séu ávallt í fyrirrúmi.

Meðal málefna sem ráðuneytið fer með eru fræðslumál barna og ungmenna, þar með talin málefni leik-, grunn og framhaldsskóla, listaskóla og lýðskóla, og málefni sem snerta þjónustu við börn og ungmenni, s.s. barnavernd og samþætting þjónustu í þeirra þágu. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer einnig með íþrótta- og æskulýðsmál. Menntun á framhaldsskólastigi, hvort heldur bók-, verk- eða listnám, heyrir undir ráðuneytið.

Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Allar embættisfærslur starfsmanna eru gerðar í umboði ráðherra. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Ráðuneytinu er skipt í fjórar skrifstofur: Skrifstofu stefnumótunar og innleiðingar, skrifstofu greininga og fjármála, skrifstofu gæða og eftirlits og skrifstofu ráðuneytisstjóra og innri þjónustu

Undirstofnanir ráðuneytisins eru Ráðgjafar- og greiningarstöð, Barna- og fjölskyldustofa, Menntamálastofnun og framhaldsskólar landsins.

Menntamálaráðuneytið var formlega stofnað 1. júní 1947 þegar ákveðið var að forsætis- og menntamálaráðuneytið skyldu framvegis starfa undir sama ráðuneytisstjóra. Þetta hélst óbreytt til 1. janúar 1970, en þá var þeim skipt í tvö ráðuneyti. Heiti ráðuneytisins var með lögum breytt í mennta- og menningarmálaráðuneyti 1. október 2009 og í mennta- og barnamálaráðuneyti 1. febrúar 2022.

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Hvað gerum við

Hlutverk mennta- og barnamálaráðuneytisins er að tryggja að menntun, aðbúnaður og réttindi barna á Íslandi séu ávallt í fyrirrúmi. Ráðuneytið fer með málefni skóla og fræðslu, æskulýðs- og íþróttamál, velferðarmál barna og barnavernd. Nám á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi heyrir undir fagskrifstofur ráðuneytisins – svo og námsmat, námsgögn og námskrárgerð á þeim skólastigum. Þá heyra listaskólar og lýðskólar undir ráðuneyti mennta- og barnamála.
Nánar

RÁÐUNEYTIÐ VEKUR ATHYGLI Á

STEFNUSKJAL OG ÞRIGGJA ÁRA ÁÆTLUN

Kallað hefur verið eftir stefnumiðaðri áætlun (stefnuskjali) og þriggja ára áætlun frá stofnunum ráðuneytisins og öðrum aðilum.

Samráð

Drög að lagafrumvörpum, reglugerðum og stefnum eru að jafnaði sett á vefinn til samráðs og umsagnar.

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra

Mennta- og barnamálaráðherra

Ásmundur Einar Daðason

Fæddur í Reykjavík 29. október 1982. Búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 2002. B.Sc.-próf í almennum búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007. Alþingismaður fyrir Norðvesturkjördæmi frá árinu 2009. 

Nánar...

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum